top of page
Öryggi - Heilsa - Umhverfi (ÖHU)

Bæklingar - Vinnuvernd

Hér er ætlunin að koma upp safni áhugaverða bæklinga og fræðslurita um vinnuverndar og öryggismál. Við skorum á fyrirtæki og alla áhugasama um að senda okkur ábendingar um áhugavert efni sem setja mætti upp hér á síðunni.

Ábyrgð verkstjóra (stjórnenda)

Stjórnendur fyrirtækja má líklega almennt flokka í forstjóra/framkvæmdastjóra – millistjórnendur og framlínustjórnendur/verkstjóra. Löggjöfin í landinu gerir ýmsar kröfur til stjórnenda fyrirtækja m.a. gegnum skattalög, hlutafjárlög, vinnulöggjöfina o.s.frv - en hér verður kastljósinu einkum beint að framlínustjórnendunum þ.e. verkstjórum og ábyrgð þeirra aðila á vinnuumhverfi, vinnuslysum og skaðabótum.

CE - Merkingar og vélbúnaður

Atvinnurekendur, verkstjórar, verkfræðingar, vélstjórar, öryggisfulltrúar og íslenskir iðnaðarmenn (vélvirkjar, málmiðnaðarfólk o.fl. starfsstéttir) vinna oft störf þar sem þörf er fyrir nokkra innsýn í regluverkið varðandi CE merktan vélbúnað.

Vinnuumhverfisstjórnun - Vinnuvernd

Hér er á ferðinni lítið fræðsluhefti um ÖHU (öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál) sem inniheldur helstu grunnatriði varðandi vinnuvernd og vinnuumhverfisstarf fyrirtækja. Í heftinu fylgja einnig nokkur áhugaverð nýleg verkfæri byggð á rannsóknum atferlisvísinda sem geta mögulega stuðlað að aukinni virkjun starfsmanna og stjórnenda í vinnuverndarstarfinu

Please reload

bottom of page