top of page

Iðnaður - Almennt

Öryggi - Heilsa - Umhverfi (ÖHU)

Hér ætlum við að koma upp safni áhugaverða bæklinga, fræðslurita og krækja varðandi vinnuverndar- og öryggismál. Við hvetjum fyrirtæki og alla áhugasama um að senda okkur ábendingar um efni sem setja mætti upp hér á síðunni.

Danska vinnuverndarráðið í iðnaði

Danska vinnuverndarráðið í iðnaði hefur gefið út mjög mikið af áhugaverðu efni um vinnuverndar- og öryggismál fyrir fyrirtæki í iðnaði

Fræðsluefni Vinnueftirlitsins

Vinnueftirlitið hefur unnið mikið af flottu og áhugaverðu fræðsluefni gegnum tíðina - hér er slóð á útgefið efni þeirra á heimasíðunni www.vinnueftirlit.is

Ábyrgð verkstjóra (stjórnenda)

Stjórnendur fyrirtækja má líklega almennt flokka í forstjóra/framkvæmdastjóra – millistjórnendur og framlínustjórnendur/verkstjóra. Löggjöfin í landinu gerir ýmsar kröfur til stjórnenda fyrirtækja m.a. gegnum skattalög, hlutafjárlög, vinnulöggjöfina o.s.frv - en hér verður kastljósinu einkum beint að framlínustjórnendunum þ.e. verkstjórum og ábyrgð þeirra aðila á vinnuumhverfi, vinnuslysum og skaðabótum.

Vinnuumhverfisstjórnun - Vinnuvernd

Hér er á ferðinni lítið fræðsluhefti um ÖHU (öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál) sem inniheldur helstu grunnatriði varðandi vinnuvernd og vinnuumhverfisstarf fyrirtækja. Í heftinu fylgja einnig nokkur áhugaverð nýleg verkfæri byggð á rannsóknum atferlisvísinda sem geta mögulega stuðlað að aukinni virkjun starfsmanna og stjórnenda í vinnuverndarstarfinu

Framkvæmd Take-5

Hér er fín Áströlsk (Ensk) heimasíða um notkun Take-5

Please reload

bottom of page